bókhaldsþjónusta og ráðgjöf

Gæfan fylgir góðri nennu!

Fyrirtæki sem hafa bókhald og skattamál í lagi standa sterkari. Réttur grunnur í fjármálum tryggir ekki aðeins að allt sé í samræmi við lög og reglur, heldur gefur hann stjórnendum skýra mynd af rekstrinum og tækifærum til vaxtar..

Samstarfsaðilar
dk logo main
logo paydaypng
netbokhald logo
uniconta log
bc logo
regla

Heildræn bókhaldsþjónusta

Við sjáum um allt bókhald, ráðgjöf, laun, VSK, stofnun fyrirtækja og húsfélög — með fræðslu, leiðsögn og öruggum vinnubrögðum frá upphafi til enda.

Bókhaldsaðstoð

Sjálfstæð og einföld bókhalds­aðstoð: yfirferð, leiðsögn og framtal svo reksturinn þinn sé réttur og skýr.

Bókhaldsþjónusta

Heildstæð bókhaldsþjónusta: færslur, afstemmingar, gagnaöflun, reikningar, laun og hraðvirk vinnsla með tækni.

Stofnun fyrirtækja

Stofnun fyrirtækja með ráðgjöf um VSK og laun, fræðslu og örnámskeið — með þínu virka eftirliti.

Húsfélög

Bókhald fyrir húsfélög og umsýsla með endurgreiðslu VSK vegna framkvæmda.

Gott og traust bókhald skapar öruggan grunn fyrir reksturinn og áhyggjulaust líf. Við sjáum um bókhald, VSK, laun, framtal og stofnun fyrirtækja, auk fræðslu og ráðgjafar sem gefa þér fulla yfirsýn og stjórn á fjármálunum.

birds flying over the sea at sunrise 164756681545
01.

Áhyggjulaus rekstur

Við vitum að rekstur fyrirtækis krefst tíma og orku. Þegar við tökum að okkur bókhaldið geturðu einbeitt þér að því sem þú gerir best – að reka fyrirtæki þitt.

Hjá okkur færðu faglega þjónustu í bókhaldi, launavinnslu og skattskilum, allt með nákvæmni og trúnaði. Við höldum utan um tölurnar svo þú þurfir ekki að hafa þær í huga.

02.

Betri yfirsýn

Að vita hvernig fyrirtækið gengur ætti ekki að krefjast tíma og fyrirhafnar. Við gefum þér skýra og aðgengilega yfirsýn yfir fjárhag rekstrarins – hvort sem þú vilt fylgjast með tekjum og gjöldum, sjá stöðuna á hverjum tíma eða undirbúa þig fyrir næsta skref.

Með réttum upplýsingum á réttum tíma tekurðu betri ákvarðanir – og horfir fram á veginn með öryggi.

03.

Finna tækifæri

Gott bókhald snýst ekki bara um að halda utan um það sem hefur gerst – það getur líka hjálpað þér að sjá hvað gæti gerst. Við greinум reksturinn með þig, bendum á þar sem sparnaður er mögulegur, hvar vöxtur er í kortunum og hvernig þú getur nýtt stöðu fyrirtækisins betur.

Við erum ekki bara bókarar – við erum ráðgjafar sem vilja sjá þig ná árangri.

04.

Ánægðir viðskiptavinir

Við mælum árangur okkar ekki bara í tölum heldur í trausti. Markmið okkar er að viðskiptavinir okkar finni alltaf fyrir þjónustu sem er hröð, nákvæm og persónuleg – hvort sem um er að ræða einyrkja eða stærra fyrirtæki.

Við hlustum, við svörum og við erum alltaf til staðar þegar þú þarft á okkur að halda.

Um okkur

Við getum stutt þig í að ná þeim árangri sem þú leitar eftir. Saman munum við vinna að því að styrkja grunninn, efla tengslin og þróa reksturinn áfram.

Umsagnir

Það sem viðskiptavinirnir segja

Profit veitir framúrskarandi góða og faglega þjónustu Get 100% mælt með henni
Systa fósturforeldri

Profito ehf — kt. 520608-0950 — vsk. 98333 — Engihjalla 8, 200 Kópavogur — s: 537-5500 — [email protected]

Stefna Profito ehf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

1 Tilgangur og markmið

Profito ehf leggur áherslu á að hlíta öllum kröfum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka auk annarra laga og reglugerða sem settar eru á sama grundvelli. Tilgangur stefnu þessarar er að koma á og viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur Profito ehf verði notaðar í ólöglegum tilgangi er tengist peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er vísað til þess þegar einstaklingur eða lögaðili tekur við, nýtir eða aflar sér með einhverjum hætti ávinnings sem verður til vegna brots sem er refsivert samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum.

2 Ábyrgðaraðilar og helstu verkefni

Stefnan nær til stjórnar, stjórnenda og starfsmanna Profito ehf. Stjórn ber ábyrgð á að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits. Forstjóri/framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að stefnu þessari sé framfylgt og skal með reglulegum hætti kanna hvort henni sé framfylgt innan félagsins.

Ábyrgðarmaður aðgerða gegn peningaþvætti skal að lágmarki einu sinni á hverju rekstrarári taka saman upplýsingar um tilkynningar til lögreglu og gefa skýrslu til stjórnar félagsins.

Starfsmönnum ber að starfa samkvæmt þeim ferlum og verklagi sem félagið hefur innleitt og vera vakandi fyrir viðeigandi aðgerðum gegn peningaþvætti og hryðjuverkum.

Aðferðir og skýrslugerð

Aðgerðir gegn peningaþvætti skulu m.a. felast í gerð áhættumats sem inniheldur skriflega greiningu og mat á hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, með tilliti til viðskiptamanna, landa, varna, þjónustu og dreifileiða.

3 Endurskoðun

Endurskoða skal stefnu þessa árlega eða oftar ef tilefni er til.

Samþykkt af stjórn Profito ehf þann 11.01.2023.